Articles

Hafa Samband

 

Hvernig hef ég samband við Kvíðameðferðarstöðina?
 
Best er að hafa samband við Kvíðameðferðarstöðina í gegnum tölvupóst ( kms hjá kms.is ) eða í síma 534-0110 eða 822-0043. Auðveldast er að ná inn milli 9.30 og  15.30 á virkum dögum þegar ritari er við símann (hægt að skilja eftir skilaboð). Reynt er að svara skilaboðum og tölvupósti eins fljótt og kostur er, en stundum getur allt að vika liðið frá því tölvupóstur er sendur eða skilaboð skilin eftir, þar til svar fæst.
 
Kvíðameðferðarstöðin er til húsa í Skútuvogi 1a (2. hæð, beint fyrir ofan Rönning, gengið inn frá hægri hlið hússins), 104 Reykjavík.
 
Hvað kostar þjónusta við Kvíðameðferðarstöðina?
 
Einstaklingsviðtal hjá sálfræðingum Kvíðameðferðarstöðvarinnar kostar 10.000. Námskeiðin við Kvíðameðferðarstöðina eru hlutfallslega ódýrari en einstaklingsviðtölin og ræðst verð námskeiðs m.a. af lengd námskeiðs. Almenna reglan er að hópmeðferðartíminn (sem er yfirleitt tveggja tíma langur) kosti um 6000 krónur. Tíu skipta hópmeðferð ætti því t.d. að kosta í kringum 60 000 krónur. Hægt er að sjá verð einstakra námskeiða í námskeiðslýsingum hér á heimasíðunni. ATH, Kvíðameðferðarstöðin áskilur sér rétt til þess að fara fram á greiðslu fyrir viðtöl sem hafa verið bókuð en viðkomandi ekki mætt í og ekki boðað forföll með sólarhrings fyrirvara.
 
Sálfræðiþjónusta er ekki niðurgreidd af Tryggingastofnun ríkisins, en ýmis stéttarfélög taka þátt í kostnaði sálfræðimeðferðar fyrir meðlimi sína (sjá má lista hér að neðan yfir sum þeirra stéttarfélöga sem niðurgreiða sálfræðiþjónustu fyrir meðlimi sína. Hafa ber í huga að listinn er ekki tæmandi og að breytingar kunna að hafa átt sér stað frá því að listinn var gerður).
 
Yfirlit yfir nokkur stéttarfélög sem taka þátt í greiðslu á sálfræðiþjónustu(listinn er ekki tæmandi!).
 
 
 
Stéttarfélag Sími Fyrirkomulag
BHM 581-2090 Hámark 40.000 kr. á ári
BSRB 525-8300 4000 kr. fyrir tímann, hámark 15 tímar á ári
Efling 510-7500 3000 kr. fyrir tímann, hámark 15 tímar á ári
Rafiðnaðarsambandið 580-5200 40% af kostnaði í allt að 25 skipti
VR 5101700 Ef á inni í varasjóði
Verkalýðsfélagið Hlíf 555-0944 3000 kr. fyrir tíman, hámark 15 tímar á ári
Stéttarfélag verkfræðinga 568-9986 2000 kr. fyrir tíman hámark 15 tímar á 2 ára tímabili (gildir fyrir verkfræðinga sem starfa hjá ríkinu eða sveitafélögum
VM 575-9800 Eftir 25.000 kr. greiðist það sem umfram er, þó að hámarki 28.000
Share
Contribute!
Books!
Shop!
Kvíðameðferðarstöðin á Facebook