Articles

fyritækjaþjónusta

 

Fyrirtækjaþjónusta
 
Fræðsluerindi og styttri námskeið fyrir fyrirtæki og félagasamtök
 
Fyrirtæki hafa undanfarin ár í auknum mæli nýtt sér aðferðir sálfræðinnar til að stuðla að aukinni vellíðan starfsmanna. Fræðsluerindum og styttri námskeiðum Kvíðameðferðarstöðvarinnar er ætlað að veita starfsmönnum fyrirtækja og stofnana þekkingu á aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar (HAM) til að ná stjórn á og bæta líðan á vinnustað og í persónulegu lífi sínu.
 
Kvíðameðferðarstöðin hefur frá stofnun árið 2007 skapað sér sess sem virt meðferðarstöð þar sem veitt er greining og meðferð kvíðaraskana og tengdra vandamála. Boðið er upp á hugræna atferlismeðferð (HAM) en aðferðir hennar hafa reynst afar vel við meðhöndlun kvíða.
 
Auk hefðbundinnar einstaklingsmeðferðar og lengri hópnámskeiða er við Kvíðameðferðarstöðina boðið upp á úrval fræðsluerinda og styttri námskeiða sem henta vel fyrir fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök. Byggt er á aðferðum HAM en það er sérstakt meðferðarform sem hvílir á traustum grunni rannsókna. HAM hefur átt mikilli hylli að fagna á undanförnum árum þar sem um er að gagnsæjar aðferðir sem bera tiltölulega skjótan og mælanlegan árangur. Áhersla er lögð á að leysa núverandi vanda með markvissum vinnubrögðum. Með þessu meðferðarformi er fólk aðstoðað við að ná fram sértækum breytingum og markmiðum (sjá nánar á vef www.kms.is og www.ham.is).
 
Fræðsluerindi og námskeið geta farið fram hvort sem er í húsakynnum þess sem óskar eftir þjónustunni eða í húsakynnum Kvíðameðferðarstöðvarinnar en fyrirlestrarsalur okkar rúmar allt að 25 manns.
 
Gert er ráð fyrir að fræðsluerindi og námskeið séu 2-6 klukkustundir, eftir óskum og þörfum, en einnig er mögulegt að sníða erindi sérstaklega að þörfum verkkaupa hverju sinni. Eftirfarandi fræðsluerindi og námskeið eru í boði en í öllum tilfellum má setja efni erinda fram í formi stuttra fræðsluerinda (2-4 klst á einum degi) og í formi námskeiða (4-6 klst á 1-3 dögum).
 
Bætt líðan með hugrænni atferlismeðferð
 
Áhyggjur og kvíði
 
Svefnleysi og hugræn atferlismeðferð 
 
Sjálfstraust, áræðni og samskipti
 
 
 
Nánari upplýsingar veitir Helena Jónsdóttir, sálfræðingur Kvíðameðferðarstöðvarinnar í síma 534 0110 eða með tölvupósti This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. .
 
Share
Contribute!
Books!
Shop!
Kvíðameðferðarstöðin á Facebook